BIO
Hljómsveitin Brek var stofnuð árið 2018. Sveitin leikur aðallega frumsamda, alþýðu skotna tónlist með áhrifum úr ýmsum áttum, m.a. þjóðlagatónlist, jazz og popp en meðlimir sveitarinnar leggja mikla áherslu á að skapa áhugaverða stemningu í hljóðfæraleik sínum. Auk þess er lögð áhersla á fjölskrúðuga notkun íslenskrar tungu í textagerð.
Hljómsveitina skipa Harpa Þorvaldsdóttir söngkona og píanóleikari, Jóhann Ingi Benediktsson gítarleikari og söngvari, Guðmundur Atli Pétursson mandólínleikari og Sigmar Þór Matthíasson bassaleikari.
Brek hefur vakið verðskuldaða athygli síðustu ár en hljómsveitin var tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna í flokki þjóðlagatónlistar tvö ár í röð og hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir plötu ársins í þjóðlaga- og heimstónlist árið 2022 fyrir sína fyrstu plötu sem er samnefnd sveitinni, ásamt því að platan var Plata vikunnar á Rás 2. En síðan þá hefur Brek komið fram víða um heim, á hátíðum m.a. í Bandaríkjunum, Finnlandi, Noregi, Danmörku og Írlandi.
Að auki hefur hljómsveitin boðið upp á barna- og fjölskyldudagskrá undir yfirskriftinni Bernsku-BREK sem hefur verið flutt fyrir grunnskólabörn í Reykjavík, Kópavogi, Siglufirði, Finnlandi, Noregi og víðar.
Önnur plata sveitarinnar er væntanleg haustið 2026.