A black and white photo of four musicians sitting on a bench in front of a brick wall. The first man on the left has a beard, glasses, and is holding an acoustic guitar. The woman next to him has long wavy hair and is holding a small keyboard. The third person, a man wearing a flat cap, is holding a ukulele. The fourth person, a man in a blazer, has short hair and is sitting with his hands clasped.

JÓHANN INGI BENEDIKTSSON

gítar & söngur

Jóhann útskrifaðist með framhaldspróf í gítarleik frá tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar vorið 2006 og nam í kjölfarið skapandi tónlistarmiðlun við Listaháskóla Íslands og útskrifaðist þaðan árið 2015. Hann er í masters námi í söng og hljóðfærakennsluvið Listaháskóla Íslands og starfar sem tónlistarkennari við Tónskóla Sigursveins D.Kristinssonar. Hann var meðlimur hljómsveitarinnar Kamp Knox sem gaf út plötuna A Tad ´65 árið 2005.

HARPA ÞORVALDSDÓTTIR

söngur & píanó

Harpa útskrifaðist  með masterspróf í óperusöng frá tónlistarháskólanum Mozarteum í Salzburg í Austurríki vorið 2011 og starfaði sem tónmenntakennari við Laugarnesskóla í Reykjavíkum árabil. Nú starfar hún sem verkefnastjóri hjá Reykjavíkurborg. Hún var meðlimur í hljómsveitinni Groundfloor og djass kvartettinum SoundPost. Hún gaf út sólóplötuna Embrace árið 2015.

GUÐMUNDUR ATLI PÉTURSSON

mandólín

Guðmundur er í grunninn kvikmyndagerðamaður og starfar við sjónvarpsframleiðslu. En hann hefur áður starfað með blágresissveitinni Illgresi, ásamt þáttöku í ýmsum verkefnum svo sem hljóðfæraleik áupptökum og tónleikum með Baggalúti, Brother Grass, Krumma og fleirum.

SIGMAR ÞÓR MATTHÍASSON

kontrabassi

Sigmar hefur verið virkur í íslensku tónlistarlífi um árabil. Hann lauk framhalds- og burtfararprófi frá jazzdeild Tónlistarskóla FÍH árið 2012 og haustið 2013 hóf hann framhaldsnám við tónlistardeild hins virta bandaríska háskóla The New School í New York borg í Bandaríkjunum. Þaðan útskrifaðist hann með láði vorið 2016 með BFA gráðu í jazz- og nútímatónlist. Sigmar hefur samið og útsett verk m.a. fyrir Stórsveit Reykjavíkur og hefur leikið með mörgum af helstu jazz- og popplistamönnum landsins. Í september 2018 gaf Sigmar út sína fyrstu sóló plötu, sem ber heitið Áróra, en hún hlaut tvennar tilnefningar til Íslensku Tónlistarverðlaunanna í flokki jazz- og blústónlistar árið 2019.

Hljómsveitin Brek leikur aðallega frumsamda, alþýðu skotna, tónlist með áhrifum úr ýmsum áttum. Áhersla er á að tvinna saman hinum ýmsu áhrifum frá mismunandi stílum þjóðlaga- og dægurtónlistar. Einnig reynir sveitin að skapa áhugaverða en notalega stemningu í hljóðfæraleik sínum, en jafnframt krefjandi á köflum. Sveitin leggur áherslu á að nota fjölskrúðugt orðbragð og nýta þannig hinn mikla og fallega orðaforða sem íslenskan hefur upp á að bjóða.  

Áhrif tónlistarinnar koma úr ýmsum áttum en Brek vill leitast við að tvinna þeim saman í sinn hljóðheim og leitast þannig við aðbrjóta niður múra á milli tónlistarstefna ásamt því að tengja íslenskan þjóðlagaarf við aðrar tegundir þjóðlagatónlistar.

​Hljómsveitin var tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna í flokki þjóðlagatónlistar tvö ár í röð og hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir plötu ársins í þjóðlaga- og heimstónlist árið 2022 fyrir sína fyrstu plötu, sem er samnefnd sveitinni.